S01E39 | Dökku hliðar sjómennskunar
Hlynur Freyr Vigfússon er fiskimaður af lífi og sál sem starfar sem skipstjóri í Noregi. Hann elskar sjómennskuna en segir hana eiga sér hliðar sem stundum hafa farið illa með marga góða menn. Hlynur hratt nýlega af stað átaki sem ætlað er að styðja við sjómenn sem glíma við andlega erfiðleika eins og þunglyndi, kvíða og alkóhólisma. Hann ræddi þetta og margt fleiria í Spjallinu með Frosta Logasyni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E22 | Allsherjar fjármálahrun ekki óhugsandi
Kjartan Ragnars starfar sem regluvörður Myntkaupa. Hér ræðir hann um gegndarlausa peningaprentun og óstjórn efnahagsmála á Vesturlöndum og hvernig sú þróun geti hæglega endað í allsherjar hruni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E23 | Meginþorri Rússa ekki framið neina glæpi
Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri segir Vesturlönd gera mistök með því að taka ekki tillit til þeirrar sérstöðu sem Úkraína hefur gagnvart Rússlandi.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E24 | Logið um trans fólk
Hvað eiga Nýnasistar, hormónablokkerar og kynrænt sjálfræði sameiginlegt? Jú allt kemur þetta fyrir í umfjöllun Frosta og Norræn-karlmennsku Jónsa um það hvernig transhugmyndafræðin hefur verið að birtast þeim sem leikmönnum á þessu sviði.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E25 | Að rökræða við rætið innræti
Framhaldsumfjöllun Frosta og Norræn-karlmennsku Jónsa um það hvernig transhugmyndafræðin hefur verið að birtast þeim sem leikmönnum á þessu sviði. Rætt er um transkonur í íþróttum, hatursorðræður og fleira.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E20 | Segir stjórnvöld fela fyrir almenningi hvað gekk á hjá Innheimtustofnun
Stjórnendur Innheimtustofnunnar sveitafélaga (IS) eru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara og hefur Ríkisendurskoðun verið falið að gera úttekt á starfseminni aftur til ársins 2015. Gunnar Kristinn Þórðarson, stjórnsýslufræðingur og fyrrverandi formaður Samtaka meðlagsgreiðenda furðar sig á að útektin nái ekki lengra aftur í tímann enda hafi hann sjálfur kært IS til héraðssaksóknara árið 2015 eftir að hafa þá í mörg ár bent viðeigandi aðilum á að ekki væri allt með felldu hjá stofnunni. Hann segist fullviss um að mikil fjársvik hafi átt sér stað á árunum á undan og segir þann grun sinn vel studdan með opinberum gögnum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E11 | Skólinn á að vera jöfnunartæki sem tryggir öllum sömu tækifæri
Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri og Hermundur Sigmundsson, prófessor hafa báðir verið óþreytandi í að benda á mikilvægi þess að gerðar verði úrbætur á núverandi stefnu í menntamálum hér á landi. Hafa þeir báðir miklar áhyggjur af leskilningi og félagsfærni íslenskra barna en rannsóknir sýna að þau komi vægast sagt illa úr samanburði við nágrannaþjóðir okkar. Þeir félagar brenna mjög heitt fyrir þessum málaflokki og eru hoknir af reynslu. Það er því hrein unun að heyra þá ræða hugmyndir sínar og áherslur.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
2
views
S01E12 | Muna ekki hvernig þeir seldu úr Lindarhvoli
Þorsteinn Sæmundsson fyrrum þingmaður Miðflokksins hefur reynt að fá svör um Lindarhvolsmálið frá árinu 2018. Hann skýrir hér á mannamáli frá helstu atriðum málsins þar sem ýmislegt grunsamlegt hefur komið í ljós.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E13 | Ofbeldi barnaverndar gegn börnum
Sara Pálsdóttir er lögmaður sem fullyrðir að ofbeldi og mannréttindabrot séu framin innan barnaverndarkerfisins á Íslandi. Hún segir ofbeldið dulbúið í meintri hagsmunagæslu barnanna en sé í raun ekkert annað en pyntingar og ómannúðleg, vanvirðandi meðferð fyrir þá sem verða fyrir henni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E14 | Miskunarlaust samfélag
Sigmundur Ernir, ritstjóri Fréttablaðsins sáluga, ræðir áhyggjur sínar af þróun fjölmiðlalandslagsins. Hann segir að með færri ritstýrðum miðlum aukist harkan í þjóðfélaginu og samfélagið verður minna friðsælt fyrir vikið. Hvað finnst þér?
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
2
views
S01E15 | Staðan er bara að fara versna
Ragnar Þór Ingólfsson er ómyrkur í máli þegar hann ræðir um stöðu efnahagsmála. Hann spáir enn hækkandi vöxtum frá Seðlabankanum, enda telur hann bankann og stjórnvöld leynt og ljóst stefna að meðvitaðri og stórri eignatilfærslu frá hinum verr settu til þeirra efnuðu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E16 | Útlit fyrir að Landlæknisembættið hafi falsað gögn
Þorsteinn Siglaugsson, hagfræðingur og rekstrarráðgjafi, fylgdist sérstaklega vel með þróun Covid 19 faraldursins og skrifaði heilmikið af greinum um aðgerðir stjórn- og heilbrigðisyfirvalda. Í þessu viðtali fer hann yfir margt af því sem hann og fleiri vöruðu við á sínum tíma. Til dæmis aukaverkanir bóluefna, óþarflega harðar lokanir og takmarkanir, ritskoðun, umframdauðsföll og margt fleira sem lítur frekar einkennilega út í baksýnisspeglinum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
2
views
S01E17 | Velgengni Vesturlanda ekki sjálfsögð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er nýjasti gestur þáttarins Spjallið með Frosta Logasyni. Hér er farið ítarlega yfir áhrif þeirrar plágu sem kölluð er wokismi í daglegu máli og hvernig hún hefur meðal annars dreift úr sér á sviði stjórnmálanna á undanförnum árum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E18 | Græðgi leigusala sýni verstu hliðar manneskjunnar
Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Hann telur nauðsynlegt að ríkið grípi til aðgerða til þess að verja leigjendur gagnvaert botnlausu okri á leigumarkaði.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
S01E19 | Senda samfélaginu fokkmerki úr héraðsdómi
Davíð Bergmann hefur mikla reynslu af vinnu með ungmennum sem farið hafa útaf brautinni í lífinu. Hann segir umræðuna um aukið ofbeldi á Íslandi vera langþreytta og síendurtekna. Hann talar um breyttar nálganir og nýjar áherslur sem gætu skikkað ungmenni í afbrotum til að læra af mistökum og axla ábyrgð á gjörðum sínum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
E01S01 | Hefur aðstoðað á fimmta hundrað manns með hugvíkkandi efnum
Sífelt fleiri Íslendingar nýta sér nú hugvíkkandi meðferðir gegn þunglyndi, kvíða og ýmis konar áföllum. Efnin eru eru strangt til tekið ólögleg hér á landi og fólk sækir meðferðirnar hjá einstaklingum sem eru ófaglærðir. Sumir þeirra eru þó gríðarlega reynslumiklir og Pétur Guðmundsson er einn þeirra.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E02 | Mismunað vegna pólitískra skoðana
Ivu Marín Adrichem var slaufað af Ferðamálastofu vegna pólitískra skoðana sinna. En þar með er ekki öll sagan sögð því mömmu hennar var líka sagt upp starfi hjá Pírötum fyrir það eitt að vera mamma hennar.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E03 | Byssurnar alltaf hættulegar í vitlausum höndum
Ómar Helenuson er sjóðheitur skotvopna og veiðiáhugamaður. Hann býður upp á ferðir til Bandaríkjanna þar sem í boði er kennsla á allskonar vopnum og veiðibúnaði. Þar er einnig hægt að veiða bæði dádýr og ýmiskonar rándýr með hálfsjálfvirkum AR-15 rifflum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E04 | Ekkert jafn spennandi og hugvíkkandi efni
Dr. Kári Stefánsson er ekki hrifinn af forræðishyggju þegar kemur að hugvíkkandi efnum en segir líklegt að þau geti gagnast venjulegu heilbrigðu fólki jafnvel betur en þeim sem eru lasnir.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E05 | Engin staða verri en að vera heimilislaus fíkill
Arnar Gunnar Hjálmtýsson, forstöðumaður áfangaheimilisins Betra líf, er nýjasti gestur þáttarins Spjallið með Frosta Logasyni. Eftir að bruni kom upp í húsnæðinu fyrr í þessum mánuði hefur Arnar verið gagnrýndur fyrir að reka rándýrt úrræði fyrir einn veikasta hóp samfélagsins og að heimilið sé þar auki stórhættuleg dauðagildra vegna ónægra brunavarna. Þessu hafnar Arnar með öllu og segir þá umræðu vera á miklum villigötum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E06 | Dauðvona í prófkjöri
Þegar Egill Þór Jónsson var í framboði fyrir sveitastjórnarkosningarnar síðustu fékk hann þær fréttir að eitilfrumkrabbameinið sem hann var að kljást við væri búið að dreifa sér í flest öll mikilvægustu líffæri hans. Hann vissi sem var að líkur hans væru ekki góðar en með nýrri tækni náðu læknar þó að ráðast að meininu þannig að hann hefur náð undraverðum bata í dag.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
11
views
S01E07 | Verkföll hafa reynst okkur vel
Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson er nýjasti gestur þáttarins Spjallið með Frosta Logasyni. Þeir félagar ræða fjölmiðlun stjórnmálaflokka, efnahagsástandið á Íslandi og stéttarbaráttu Eflingar gegn Samtökum atvinnulífsins.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
1
view
S01E08 | Ekkert auðvelt að drepa dýrin
Ævar Austfjörð hefur verið áberandi talsmaður aukinnar kjötneyslu og leggur áherslu á „carnivore“ mataræði þar sem einstaklingar neyta einungis dýraafurða. Hann er nú fluttur í sveit og farinn að rækta eigin gripi eftir umhverfisvænni leið með minni aðkomu tækja.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
2
views
S01E09 | Verst að hafa ekki forræði yfir eigin lífi
Ragnar Erling Hermannsson hefur marga fjöruna sopið um ævina. Undanfarið hefur hann vakið mikla athygli sem talsmaður heimilislausra í Reykjavík. Við ræðum við Ragga um áföll hans og fortíð, kókaínsmyglið í Brasilíu og hugmyndir hans um lausnir fyrir heimilislausa.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
7
views
S01E10 | Treystir dómstólum ekki fyrir sakamálum og vill kviðdóm
Einar Gautur Steingrímsson hefur verið starfandi lögmaður í 35 ár. Hann segist sannfærður um að dómarar í íslensku réttarkerfi dæmi menn stundum seka án þess að hafa hugmynd um hvort þeir séu það í raun. Af hans reynslu segist hann því ekki treysta dómstólum fyrir sakamálum.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
3
views