Premium Only Content
Snorra vika Mássonar
Það vakti mikla athygli, þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, og Þorbjörg Þorvaldsdóttir verkefnastýra Samtakanna ´78 mættust í Kastljósi 1. september til að ræða transmálin.Transumræðan gaus upp enda langur og mikill þrýstingur ritskoðunarafla eins og Samtakanna ´78 sem reynt hafa að hindra að gagnrýni á einstrengislegt trúboð samtakanna um að kynin séu fleiri en tvö og margir fæðist í „röngum" líkama og þurfi þá að skipta um kyn eins og aðrir skipta um föt.
Alls kyns valdhafar í samfélaginu, borgarfulltrúar Reykjavíkur, ráðherrar, þingmenn, skólastjórar ásamt blaðamönnum og álitsgjöfum hafa keppst um að fordæma Snorra Másson og koma á hann höggi eftir Kastljósþáttinn. Einnig hefur stór hópur fólks haft samband við Snorra til að tjá honum stuðning sinn og hvatt hann til að víkja ekki fyrir móðgunarholskeflunni.
Það sem setur alvarlegan svip á umræðuna alla er að lögreglan mat að hann og fjölskyldan þyrftu að vera undir vernd lögreglu, þar sem heimilisfangi hans var dreift á samfélagsmiðlum og ýmsir haft uppi að fara og „heimsækja" hann. Snorri er þriggja barna fjölskyldufaðir og alvarlegt að verið sé að koma með dulbúnar hótanir sem leiðir til þess að Snorri og fjölskyldan þurfi á aðstoð lögreglu að halda.
Í þessum þætti Ísafoldar ræða þau Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason við hinn kunna blaðamann og bloggara Pál Vilhjálmsson sem sjálfur hefur lent í því að vera ákærður af Samtökunum ´78 fyrir að halda því sama fram og þingmaður Miðflokksins. Héraðsdómur sýknaði Pál af öllum hatursákæruatriðum S78. Fólk getur haft ólíkar skoðanir en að elta hatur Samtakanna ´78 sem vill setja þá í fangelsi og sekta sem ekki eru sammála boðskap þeirra, er ekki lengur frjáls umræða heldur þvingandi ritskoðun.
Þau Páll, Íris og Gústaf fóru yfir mörg atriði umræðunnar og öll vonast þau til að í framtíðinni verði ekki eins dramatískt að ræða málefni Samtakanna ´78 sem virðast enga gagnrýni þola. Páll benti á að miklir fjármunir væru í húfi og Íris skýrði samstarfssamning S78 við Akureyrarbæ sem gefur þeim forskot yfir öll önnur sambærileg félög á landinu. Þar kom fram að bærinn greiðir dágóða fúlgu fyrir „ráðgjöf" til starfsmanna bæjarins, kennara og fleiri sem eru tekjur ofan á tæplega 100 milljón króna styrk frá íslenska ríkinu. Gústaf vísaði í Ársskýrslu S78 en samtökin fengu tæpar 200 milljónir í tekjur ár 2024, þannig að ekki er um að ræða nein kjallarasamtök heldur vel smurða áróðursvél sem að mestu er rekin fyrir skattfé almennra borgara.
Óhróðurinn og hatrið sem gaus upp gegn fullyrðingu Snorra Mássonar um að hann tryði ekki að til væru fleiri en tvö kyn er þeim til skammar sem leggja slíkt á borð eins og til dæmis biskup Íslands sem ýjaði að því að sjálfsvígum myndi fjölga vegna skoðana þingmannsins. Þeim mun fyrr sem þjóðin kemst að niðurstöðu í transumræðunni því betra.
Páll Vilhjálmsson sagði:
„Vonandi verður hægt að ljúka transumræðunni og setja ofan í skúffu, loka henni og læsa og henda lyklinum."
-
LIVE
Steven Crowder
4 hours ago🔴 Nick Fuentes Sits Down with Crowder
66,387 watching -
55:13
Misfits Mania
2 hours ago $4.79 earnedMISFITS MANIA: Launch Press Conference
35K6 -
LIVE
Sean Unpaved
1 hour agoPlayoff Implications On The Line For Cowboys vs. Lions NFC SHOWDOWN! | UNPAVED
67 watching -
1:07:12
The Rubin Report
2 hours agoHost Gets Visibly Angry as Scott Bessent Rips Him to Shreds in Front of NY Times Crowd
22.9K13 -
4:42
Buddy Brown
3 hours agoThe Most GHETTO Chick-fil-A Customer EVER! | Buddy Brown
3477 -
1:11:14
iCkEdMeL
2 hours ago $1.21 earned🔴 BREAKING: Brian Cole Identified as DC Pipe Bomb Suspect — FBI Arrest
8.42K6 -
LIVE
LFA TV
15 hours agoLIVE & BREAKING NEWS! | THURSDAY 12/04/25
2,984 watching -
LIVE
TheAlecLaceShow
1 hour agoAlec Goes To Capitol Hill for RSC New Media Event | Full Coverage | The Alec Lace Show
45 watching -
59:25
VINCE
4 hours agoFINALLY: Jan 6th Pipe Bomber Arrested? | Episode 181 - 12/04/25 VINCE
206K180 -
1:11:54
Chad Prather
3 hours agoCandace Owens ACCEPTS TPUSA’s Debate Invitation + Dem Rep Instructs Military To REMOVE Trump?!
38K13