Viðtal við Jón Magnússon hæstaréttarlögmann

1 day ago
410

Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð á Íslandi. Hún hefur birt stefnuskrá í 23 punktum. Ríkisstjórnin hefur verið kennd við Valkyrjur og sögð vera Valkyrjustjórnin. Er það rétt viðmiðun? Hlutverk valkyrja er að hreinsa burtu lík stríðsvallarins. Nær væri að tala um skaparnornirnar þrjár, Urði, Verðandi og Skuld sem tákna fortíð, nútíð og Framtíð. Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður lýsir sinni skoðun á málinu. Rætt um fyrstu athugasemdir um stefnuskrá nýju ríkisstjórnarinnar sem lýsir góðum hlutum en skortir skýr markmið sem staðfesta getuna til að leysa málin. Ríkissjóður er rekinn með 100 milljarða króna halla. Munu skaparnornirnar skapa svo mikið aðhald í ríkisrekstrinum sem dugir til vatnsins sem þarf til að halda rótum Agg Yggdrasils votum og tré lífsins lifandi? Urður gæti átt við Þorgerði Katrínu sem myndgerving fortíðar, Verðandi nútímans sómir Ingu Sæland og Skuld vísar til framtíðarinnar sem er þá Kristrúnar, en gengi og/eða gengisleysi ríkisstjórnarinnar veltur fyrst og fremst á því hve vel henni tekst til við að móta framtíðina.

Loading comments...